Erlent

Vísa árlega frá milljón gestum

Noma er sagður besti veitingastaður í heimi. Nordicphotos/AFP
Noma er sagður besti veitingastaður í heimi. Nordicphotos/AFP
Upplýsingastjóri veitingastaðarins Noma í Kaupmannahöfn telur að frá hafi þurft að vísa yfir milljón manns sem reynt höfðu að panta borð á staðnum á liðnu ári. Staðurinn getur tekið á móti 20 þúsundum gesta.

Haft er eftir upplýsingastjóra Noma, Peter Kreiner, á fréttavef Politiken að ekki séu til nákvæmar tölur þar sem fyrirspurnir komi í gegnum bókunarkerfi, tölvupóst og síma. Hver fyrirspurn getur varðað tvo til 15 gesti. Að sögn Kreiner mætti áætla að fjöldinn fari yfir eina milljón á ári.

Samkvæmt listanum World‘s 50 Best Restaurants er Noma besti veitingastaður heims. -ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×