Erlent

Getur gengið, talað og lesið

Masala Yousufzai liggur á sjúkrahúsi í Birmingham og hefur náð töluverðum bata.
Masala Yousufzai liggur á sjúkrahúsi í Birmingham og hefur náð töluverðum bata.
Pakistanska stúlkan, Malala Yousufzai, sem skotin var í höfuðið í síðasta mánuði, er á góðum batavegi. Sendiherra Pakistans í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fullyrti þetta á stúdentafundi sem haldin var til heiðurs Yousufzai í Dubai í gær.

Yousufzai var skotin vegna skoðana sinna, meðal annars á menntunarmálum kvenna. Hún liggur nú á sjúkrahúsi í Birmingham og hefur náð sér það vel að hún getur nú, að sögn sendiherrans, gengið, talað og lesið.- fsb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×