Erlent

Enn einn kveikir í sér í Tíbet

Tíbetskir munkar minnast eins af mótmælendunum sem kveikti í sér í síðustu viku. Fréttablaðið/AP
Tíbetskir munkar minnast eins af mótmælendunum sem kveikti í sér í síðustu viku. Fréttablaðið/AP
Tíbetskur listamaður lést eftir að hafa kveikt í sér í bænum Tongren í vesturhluta Kína í gærmorgun. Maðurinn, sem hét Dorje Lungdup og var málari, vildi með þessu þrýsta á um endurkomu Dalaí Lama til Tíbets og að kínversk stjórnvöld létu af yfirráðum þar.

Á vefsíðu AP er haft eftir forsvarsmanni útlagastjórnar Tíbets, sem hefur aðsetur í Dharamsala á Indlandi, að íbúar í Tongren hætti sér vart út úr húsum sínum af ótta við öryggissveitir kínverska hersins sem eru fjölmennar í bænum.

Fjölmargir Tíbetar hafa kveikt í sjálfum sér á síðustu mánuðum til að mótmæla harðræði kínverskra stjórnvalda. - fsb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×