Lagerbäck: Númer eitt að vinna leiki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. febrúar 2012 10:00 Góðir saman Lars Lagerbäck og Eyjólfur Sverrisson á blaðamannafundinum í gær. fréttablaðið/vilhelm
Lars Lagerbäck hélt í gær sinn fyrsta blaðamannafund síðan hann var kynntur til sögunnar sem nýr landsliðsþjálfari seint á síðasta ári. Þar tilkynnti hann þá leikmenn sem munu spila í vináttuleikjunum gegn Japan og Svartfjallalandi ytra í lok mánaðarins. En hann nýtti einnig tækifærið og fór yfir með ítarlegum hætti hvernig hann hyggst byggja upp landsliðið, bæði innan sem utan vallarins. Lagerbäck tók sér drjúgan tíma til að kynna sín sjónarmið og þær leiðir sem hann ætlar sér að fara til að ná settum markmiðum. Fundinn sátu einnig Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari hans, sem og Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 liðsins, og Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna. Greinilegt er að Lagerbäck ætlar sér að nýta þeirra krafta í þágu A-landsliðs karla og uppbyggingu þess á komandi árum. Sænskur njósnari í teyminuTvö ný andlit eru í starfsteymi Lagerbäck. Roland Andersson verður „njósnari" liðsins – það er að segja sérfræðingur hans um andstæðinga Íslands. Lagerbäck og Andersson hafa unnið lengi saman, bæði í landsliði Svíþjóðar og Nígeríu, en sá fyrrnefndi sagði nauðsynlegt að hafa mann í þessu hlutverki sem hann þekkir vel og treystir. Það reynir á skýr og góð samskipti þeirra, sérstaklega þegar stutt er á milli leikja. Guðmundur Hreiðarsson mun svo sjá um þjálfun markvarða. „Númer eitt hjá mér er að vinna knattspyrnuleiki," sagði hann um hvað hann teldi mikilvægast í sínu starfi. Það væri eitt að reyna að spila eins og Barcelona eða spænska landsliðið en niðurstaðan væri alltaf sú sama – að vinna leiki. „Besta leiðin til að vinna leiki er að spila vel." Það eru svo miklu fleiri atriði sem koma að því að ná aðalmarkmiðinu fram, svo sem agi (innan sem utan vallar), virðing, liðsheild og ekki síst hugarfar. Viljinn til að vinna leiki verður að vera til staðar og hugarfarið verður að vera rétt. „Það þarf auðvitað margt til að ná árangri, svo sem hæfileika, andlegan styrk og svo framvegis. En þetta snýst að stórum hluta um skapgerð og persónur leikmanna," sagði Lagerbäck. „Það þarf mismunandi leikmenn og hver hefur sína hæfileika en mín reynsla sýnir að þeir allra bestu eiga eitt sameiginlegt – allir hafa gríðarlega löngun til að vinna leiki og ná árangri. Það er hægt að temja sér slíkan hugsunarhátt en að mestu leyti er þetta meðfæddur hæfileiki." Nýta styrkleika leikmannaLagerbäck hnykkir einnig á mikilvægi þess að vera raunsær. „Við verðum að kunna að meta þá hæfileika sem búa í okkar leikmönnum. Góður fótbolti snýst um að geta nýtt leikmennina og hæfileika þeirra á sem bestan máta," sagði Lagerbäck. „Þetta fer einnig saman með bjartsýni og trú á eigin getu." Hann kom einnig að fleiri þáttum sem snúa að leikaðferð („Ég vil spila 4-4-2"), mikilvægi æfinga og leikmannavali. Fyrir leikina tvo í lok mánaðarins valdi hann tvo átján manna hópa en enginn leikmannanna mun spila báða leikina. Hann fær því tækifæri til að kynnast sem flestum leikmönnum. Fyrstu fjórir leikir liðsins undir stjórn Lägerbacks verða vináttulandsleikir gegn sterkum liðum á útivelli og segir hann að það sé mikilvægt að láta reyna vel á liðið. „Það er auðvitað ekki gott að tapa en um leið er mikilvægt að liðið taki framförum. Til þess er nauðsynlegt að spila gegn eins sterkum liðum og mögulegt er." Lagerbäck hefur kynnt sér leiki íslenska liðsins á myndböndum og landsliðsmenn sem hafa spilað síðustu ár. Hann vill þó gefa öllum jafnt tækifæri á að sýna sig og sanna fyrir honum í eigin persónu. „En mestu máli skiptir að bestu leikmennirnir séu í landsliðinu hverju sinni, óháð aldri," ítrekar hann. Megum ekki við klaufalegum mistökumÍsland hefur ekki náð góðum árangri í síðustu undankeppnum en Lagerbäck segir þó að liðið hafi oft spilað vel og í raun verið óheppið í mörgum leikjum. „En ef ég á að vera hreinskilinn þá fékk liðið á sig mörg klaufaleg mörk – í raun kjánaleg (e. silly). Liðið má ekki við slíkum mistökum ef það ætlar sér að vinna sterk lið," sagði hann og benti á mörk sem Ísland fékk á sig gegn Portúgal í síðustu undankeppni. „Liðið spilaði oft vel en stundum þurfti það síðasta upp á – að koma boltanum yfir línuna. Þar komum við aftur að hugarfarinu og sigurviljanum sem getur haft mikið að segja í slíkum aðstæðum. Það er eitthvað sem öll lið þurfa að huga vel að." Ísland leikur gegn Japan 24. febrúar og Svartfjallalandi fimm dögum síðar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Fótbolti Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Enski boltinn Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Sport Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Fótbolti „Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk“ Fótbolti Sjáðu mörk úr leik Íslands og Eistlands ásamt vítavörslu Hákons Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Sjá meira