Erlent

SAS afboðar nokkrar flugferðir í dag

Þrátt fyrir að SAS flugfélaginu hafi tekist að semja við flest verkalýðsfélög starfsmanna sinna hefur félagið afboðað nokkrar flugferðir frá Kastrup til hinna Norðurlandanna í dag.

Þannig verður t.d. ekkert af fyrstu flugferðum félagsins frá Kastrup til Stokkhólms og Helsinki og til baka.

Talsmaður SAS segir að þessar afboðanir séu vegna þess að óvenjumikið er um veikindaforföll hjá starfsmönnum SAS í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×