Áramótin úti í heimi 1. janúar 2012 16:01 Mynd/Pjetur
Nú hefur nýja árið gengið í garð í öllum löndum heims en íbúar þriggja landa fengu að njóta gamla ársins lengst allra. Allir þeir sem byggja þessa jörð hafa tekið á móti árinu 2012 með tilheyrandi hátíðahöldum. Íbúar á bandarísku-samóaeyjum, ásamt íbúum Midway-eyja og Níu, eru eflaust enn að fagna því nýja árið gekk þar í garð fyrir rúmri klukkustund. Fjöldi safnaðist saman á Friðartorginu í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þegar klukkan sló tólf á miðnætti þar í landi til að fylgjast með flugeldasýningu og minnast þeirra sem létust í óeirðunum í landinu á árinu sem leið. Þúsundir fylgdust með veglegri fimmtán mínútna flugeldasýningu í Lundúnum á miðnætti sem var með heldur óvenjulegu ívafi þetta árið. Tólf þúsund flugeldum var skotið upp en margir þeirra mynduðu ólympíumerkið og var tónlist leikin undir til að magna upplifun gestanna. Viðburðurinn hafði verið í undirbúningi í heilt ár en með herlegheitunum voru sumarólympíuleikarnir hylltir en þeir verða einmitt haldnir í borginni á þessu ári. Ástralir eru skotglaðir líkt og Íslendingar en gríðarlegur fjöldi safnaðist saman til að berja flugeldasýningu á hafnarbrúnni við Óperuhúsið augum í Sydney. Parísarbúar hópuðust saman við eitt þekktasta kennileiti í heimi, Eiffelturninn og margir Rómarbúar gerðu slíkt hið sama og fögnuðu nýju ári við Colosseum hringleikjahúsið.
Mest lesið Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Innlent Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Innlent Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Innlent Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Innlent Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Innlent Deilur Repúblikana um Epstein-skjölin magnast enn Erlent Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Innlent Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Innlent MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Innlent Krísa yfirvofandi: Þurr svæði stækka og þorna hraðar Erlent Fleiri fréttir Vill að skýrslutaka Murdochs fari fram eins fljótt og hægt er Tóku tugi af lífi eftir að hafa fengið lausnarfé Elsti Gallagher-bróðirinn ákærður fyrir nauðgun Krísa yfirvofandi: Þurr svæði stækka og þorna hraðar Fækkar dögunum sem hann gaf Pútín: „Ég held ég viti þegar svarið“ Vara við hópeitrunum af völdum THC eftir atvik í fyrra Þrír látnir eftir að lest fór af sporinu Ætla að breyta heræfingum eftir skammir frá systur Kims Semja um vopnahlé 64 prósent myndu þiggja gjaldfrjáls þyngdarstjórnunarlyf Skotárás í Bangkok: Skaut fimm til bana og fyrirfór sér Deilur Repúblikana um Epstein-skjölin magnast enn Gera tíu klukkustunda „mannúðarhlé“ á árásum Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Sjá meira