Erlent

Romney sigraði í Wyoming

Mitt Romney telst vera sigurvegari í forkosningum Repúblikana í Wyoming, fámennasta ríki Bandaríkjanna.

Forkosningar þessar hafa staðið yfir nær allan febrúarmánuð. Í frétt á CNN segir að samkvæmt tölum frá kjörstjórn flokksins í ríkinu fékk Romney 39% atkvæða en Rick Santorum fékk 33% atkvvæða.

Aðeins 2.000 manns tóku þátt í þessum forkosningum en um hálf milljón manna búa í Wyoming.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×