Olíugóðærið lifir góðu lífi 2. janúar 2012 22:00 Coldplay lék fyrir dansi á áramótadansleik krónprinsins Al Nahyan í Abu Dhabi.
Þrátt fyrir að íslensku auðjöfrarnir séu hættir að fljúga erlendum poppstjörnum til landsins eða fá þær til að heiðra sig með nærveru sinni í afmælum eru arabískir olíufurstar enn í góðum gír. Það hefur löngum verið hefð fyrir því að moldríkir auðjöfrar fljúgi heimsþekktum poppstjörnum til sín og láti þær syngja fyrir sig og veislugesti sína. Soldáninn af Brunei ruddi brautina fyrir þessa hefð, hann hélt meðal annars upp á fimmtugsafmælið sitt með einkatónleikum Michaels Jackson og borgaði honum ríflega sautján milljónir dala. Önnur saga af honum er ekki síður fræg, en þá fékk hann Whitney Houston til að syngja fyrir sig og veislugesti sína og lét hana fá auðan tékka að launum; hún mátti sjálf fylla hann út. Og nú eru það olíufurstarnir í Mið-Austurlöndum sem mala gull og hika ekki við að fá erlendar stórstjörnur til að skemmta sér og sínum. Breska hljómsveitin Coldplay er nýjasta hljómsveitin sem eltir gull og græna skóga til olíubarónanna og spilar fyrir litlar 1,6 milljónir dala, eða 197 milljónir íslenskra, í áramótaveislu krónprinsins Mohammed bin Zayed Al Nahyan í Abu Dhabi. Johnny Buckland, gítarleikari hljómsveitarinnar, kvaðst hlakka til tónleikanna fyrir helgi enda höfðu þeir fengið konunglegar móttökur. Til gamans má geta þess að miðaverðinu inn á skemmtunina var ekki stillt í hóf því hver miði kostaði 6.800 dali, tæplega 850 þúsund íslenskar krónur.Coldplay-liðar eru ekki þeir einu sem hoppa á þennan gullvagn því rappararnir Kanye West og Jay-Z voru fengnir til að vera sextán ára afmælisgjöf til frænku Sheikhs Mansour, sem á meðal annars enska knattspyrnufélagið Manchester City, og fengu fyrir það 6 milljónir dala, jafnvirði 739 milljóna íslenskra króna. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Sjá meira