Færeyingar þurfa að bíða enn lengur Kristján Már Unnarsson skrifar 15. nóvember 2012 06:30 Kínverski borpallurinn Cosl Pioneer.
Færeyingar þurfa að bíða lengur en áætlað var eftir því að úrslit fáist í dýrustu olíuborun í sögu eyjanna. Borun holunnar, sem hófst þann 17. júní, átti að taka 4-5 mánuði og vera lokið núna um miðjan nóvember. Statoil hefur nú upplýst að verklokum seinki og að borað verði til áramóta og hugsanlega lengur. Færeyingurinn Rúni M. Hansen, einn af æðstu yfirmönnum Statoil, segir í viðtali við færeyska útvarpið að í verkefni sem þessu sé ekki auðvelt að gera nákvæmar tímaáætlanir. Holan sé sérlega djúp en borun hennar sé þó langt komin. Meiri tími hafi farið í fóðrun en búist var við og ýmis vinna á borpallinum hafi reynst tímafrekari en til stóð. Rúni Hansen segir að samningar við undirverktaka hafi verið framlengdir til áramóta en færeyski veturinn geti þó truflað vinnuna á pallinum og seinkað verkinu enn lengur. Hann vill hins vegar ekkert tjá sig um hvort einhver vottur af olíu hafi fundist til þessa. Borun þessarar fimm kílómetra djúpu holu er dýrasta verkefni í atvinnusögu Færeyja. Kostnaður var áætlaður um 20 milljarðar íslenskra króna en seinkunin veldur því að holan verður enn dýrari. Statoil fer fyrir verkinu með 50% hlut, ExxonMobil á 49% og færeyska félagið Atlantic Petroleum á 1%. Kínverskur borpallur, Cosl Pioneer, borar holuna en borstaðurinn er um 100 kílómetra suðaustur af Færeyjum. Þar er hafdýpi milli 400 og 500 metrar, en borinn þarf að fara í gegnum hraunlög sem þar liggja djúpt, og spáð var að yrðu erfið.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira