Erlent

Leita að ólöglegri lyfjaverksmiðju í Danmörku

Danska lögreglan og skattayfirvöld eru nú á höttunum eftir ólöglegri lyfjaverksmiðju sem að öllum líkindum er staðsett einhversstaðar í Danmörku.

Upphaf málsins má rekja til þess að við hefðbundna leit opnaði tollurinn í fríhöfn Kaupmannahafnar nýlega 40 feta gám sem lestaður var með næstum milljón stykkjum af tómum lyfjaglösum eða svokölluðum ampúlum sem að aðeins eru notuð í lyfjaiðnaðinum. Sá sem flutti inn gáminn var hinsvegar lítið vélaverkstæði en yfirvöld vilja ekki upplýsa um hvar í Danmörku það er staðsett.

Lögreglan og skatturinn ganga út frá því að lyfjaglösin hafi átt að nota í ólöglegri lyfjaverksmiðju sem staðsett er einhversstaðar í Danmörku og leita nú hennar.

Mette Helmundt deildarstjóri hjá skattinum í Kaupmannahöfn segir í samtali við Ekstra Bladet að þegar haft er í huga að tollurinn finni milljón stykki af lyfjaglösum sem einkum eru notuð til að geyma stera sé ekki hægt að horfa framhjá því að einhverskonar ólögleg lyfjaframleiðsla sé í gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×