Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Selfoss 2-2 | Jón Daði jafnaði í lokin Einar Njálsson á Nettóvellinum skrifar 2. júlí 2012 18:30 Jón Daði Böðvarsson Mynd/Daníel
Jón Daði Böðvarsson tryggði Selfyssingum 2-2 jafntefli í Keflavík með því að skora jöfnunarmarkið á lokamínútu leiksins en heimamenn í Keflavík voru 2-0 yfir þegar aðeins sjö mínútur voru eftir af leiknum.Selfyssingar voru búnir að tapa þremur leikjum í röð en náðu nú í sín fyrstu stig síðan í maí. Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega og bæði lið sóttu hratt. Arnór Ingvi Traustason átti ágætis skot í slá snemma leiks og Guðmundur Steinarsson átti hættulega skot úr aukaspyrnu rétt yfir markið. Heimamenn tóku völdin um miðbik fyrri hálfleiks og uppskáru mark þegar Jóhann Birnir Guðmundsson kom Keflavík í 1-0 á 38. mínútu með góðu skoti út teignum og heimamenn með forystuna í hálfleik. Arnór Ingvi Traustason bætti síðan við öðru marki strax á upphafsmínútu seinni hálfleiks með skoti úr miðjum teignum þar sem hann stóð einn og óvaldaður eftir sofandi hátt í vörn Selfyssinga. Logi Ólafsson þjálfari Selfyssinga gerði þó fljótlega breytingar eftir seinna mark heimamanna og við það breyttist leikur Selfyssinga. Þeir voru mun ákveðnari og settu aukinn sóknarþunga á heimamenn. Eftir nokkur hálffæri gestanna og góðar markvörslur frá Ómari Jóhannssyni í marki Keflavíkur minnkaði Babacar Sarr muninn sex mínútum fyrir leikslok með skalla eftir hornspyrnu Ólafs Karls Finsen. Mikilvægt jöfnunarmark Jóns Daða kom síðan á 90. mínútu þegar boltinn barst inn í teig eftir enn eina hornspyrnu Selfyssinga og Jón Daði var fyrstu að átta sig og potaði boltanum inn. Þetta voru fyrstu stigin hjá lærisveinum Loga Ólafssonar síðan í 3-3 jafntefli á móti Grindavík 24. maí síðastliðinn. Bæði lið eru stutt frá fallsæti og er hvert stig þeim mikilvægt. Keflvíkingar geta nagað sig í handarbakið vegna tapaðra stiga á meðan Selfyssingar ganga sáttir frá borði miðað við stöðuna þegar 7 mínútur voru til leiksloka. Logi: Góð teikn á lofti í okkar leikMynd/Daníel„Þetta endaði ágætlega. Við vorum klaufar í fyrri hálfleik að gefa Jóhanni Birni það pláss sem hann vinnur best í, hann er stórhættulegur skotmaður" sagði Logi Ólafsson þjálfari Selfoss um mark Jóhanns Birnis sem var einkar laglegt. Keflavík skoraði annað mark sitt fljótlega í seinni hálfleik: „Við vorum sofandi í upphafi seinni hálfleiks en eftir það var bara eitt sem kom til greina og það var að jafna leikinn og það tókst. Vissulega hefðum við viljað vinna þennan leik en þetta er þó vonandi viðsnúningur í okkar leik því við höfum verið að tapa leikjum og stigum í uppbótartíma en náum í stig hér í dag og okkur tekst að loka á föst leikatriði gegn okkur. Það er góð teikn á lofti í okkar leik" sagði Logi Ólafsson nokkuð sáttur með sína menn. Jón Daði Böðvarsson átti mjög góðan leik í dag og var Logi sammála um það: „Þegar Jón er í þessum gírnum er hann stórhættulegur. Það sem gerði þó útslagið var samtaka mátturinn í liðinu, við breyttum um taktík og hækkum liðið og gerum þeim erfitt fyrir í föstum leikatriðum, það hjálpaði okkur töluvert en fyrst og síðast var það að menn vinna saman sem ein heild" Jóhann Birnir: Í besta forminu síðan að ég var 17 áraJóhann Birnir Guðmundsson, leikmaður Keflavíkur, var ekki eins sáttur enda misstu Keflvíkingar niður 2-0 forystu á lokamínútum leiksins. „Þetta voru hrikalega vonbrigði en ég held að þetta hafi ara verið sanngjarnt, mér fannst þeir miklu betri í seinni hálfleik og áttu skilið að jafna," sagði Jóhann. Keflavík virtist vera með leikinn í höndum sér þegar þeir skora seinna markið: „Ég veit ekki hvað gerist síðustu 30 mínúturnar. Menn fara bara að líta á klukkuna, það gerist stundum. Selfyssingar voru bara grimmari og stóðu sig vel, þetta er óafsakanlegt af okkar hálfu". Jóhann Birnir átti góðan leik í dag og gerði varnarmönnum Selfoss erfitt fyrir. „Ég er í mínu besta formi síðan ég var 17 ára," sagði Jóhann Birnir í gamni þegar blaðamaður spurði um formið „Nei , þetta gengur ágætlega, en leiðinlegt að hafa ekki unnið í dag" bætti hann við.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Enski boltinn Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Fleiri fréttir Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Bríet Fjóla keypt til Þróttar Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Sjá meira