Erlent

Nafni Higgs-bóseindarinnar sækir fund eðlisfræðinga

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Takist vísindamönnunum að færa sönnur á tilurð eindarinnar myndi það marka tímamót í vísindasögu mannkyns.
Takist vísindamönnunum að færa sönnur á tilurð eindarinnar myndi það marka tímamót í vísindasögu mannkyns. mynd/AFP
Rannsóknarniðurstöður alþjóðlegs hóps kjarneðlisfræðinga verða kynntar á miðvikudaginn. Síðustu ár hefur hópurinn leitað að Higgs-bóseindinni dularfullu. Takist þeim að færa sönnur á tilurð eindarinnar myndi það marka tímamót í vísindasögu mannkyns.

Boðað var til fundarins fyrir nokkrum vikum. Síðan þá hefur orðrómur gengið um vísindasamfélagið að Higgs-bóseindin - hins svokallaða Guðseind - hafi loks fundist.

Í dag greindu bandarískir eðlisfræðingar frá því að traustar vísbendingar um tilvist eindarinnar hefðu fundist í sterkeindahraðli Fermilab rannsóknarstofnunarinnar. Vísindamennirnir sögðu þó að þeir þyrftu bera rannsóknargögn sín saman við niðurstöður kjarneðlisfræðinganna hjá CERN.

Peter Higgs er fæddur árið 1929. Hann gat sér til um tilvist bóseindarinnar árið 1964 eftir að hafa rannsakað massa árum saman.mynd/fermilab
Þá var einnig greint frá því að Peter Higgs, prófessor emeritus við háskólann í Edinborg og sá sem fyrst gat sér til um tilvist Higgs-bóseindarinnar, verði viðstaddur þegar niðurstöður vísindamannanna verða kynntar.

Higgs-bóseindin er eini hluti staðallíkans eðlisfræðinnar sem ekki hefur fundist og er því að mörgu leyti týndi hlekkurinn í fræðilegri eðlisfræði. Þessi torkennilega eind er talin útskýra af hverju aðrar eindir, og þar með allt efni alheimsins, hefur massa.

Þannig er hún talin vera til grundvallar uppbyggingu alheimsins og því hafa fræðimenn gefið henni gælunafnið Guðseind.


Tengdar fréttir

Er Guðseindin í nánd?

Þrálátur orðrómur er nú á kreiki í vísindasamfélaginu um að tilraunir kjarneðlisfræðinga CERN hafi borið árangur og að tilvist Higgs-bóseindarinnar hafi loks verið sönnuð.

Traustar vísbendingar um tilvist Guðseindarinnar

Háttsettur eðlisfræðingur hjá Samtökum Evrópu að kjarnorkurannsóknum (CERN) tilkynnti í dag að traust sönnunargögn hefðu fundist sem benda til tilvistar Higgs-bóseindarinnar.

Á slóð guðseindarinnar

Vísindamenn við sterkeindahraðal evrópsku kjarnorkurannsóknastöðvarinnar (CERN) á landamærum Sviss og Frakklands hafa fundið forvitnilegar vísbendingar um tilvist Higgs-bóseindarinnar. Um er að ræða helsta markmið dýrustu vísindatilraunar allra tíma en vísindamennirnir vonast til þess að geta svarað spurningunni um tilvist hennar að fullu á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×