Minnsta kosti þrír látnir eftir að skemmtiferðaskip strandaði 14. janúar 2012 13:07 Skemmtiferðaskipið Giglio. Mynd / AP
Þrír eru látnir og fjórtán slasaðir eftir að skemmtiferðaskip strandaði rétt fyrir utan Ítalíu í gærkvöldi. Þrjátíu metra löng rifa kom á skrokk skipsins með þeim afleiðingum að sjór fór að flæða inn í skipið. Ekki er ljóst hvað olli slysinu. Skipið sem var með yfir fjögur þúsund farþega innanborðs strandaði skammt frá eyjunni Giglio fyrir utan Ítalíu með fyrrgreindum afleiðingum. Farþegar sem voru að snæða kvöldverð segja í samtölum við Ítalska fjölmiðla að hár hvellur hafi skyndilega heyrst og í kjölfarið hafi verið tilkynnt um vandræði í rafkerfi skipsins. Skipið sem er hátt í þrjú hundruð metrar að lengd fór strax að taka inn á sig sjó og hallaði um tuttugu gráður. Farþegar stukku margir hverjir í sjóinn og reyndu að ná landi. Erfitt var að koma fólki í björgunarbáta þar sem þeir voru allir hægra megin í skipinu, eldra fólk átti sérstaklega erfitt uppdráttar að sögn sjónvarvotta. Björgunarsveitarfólk er enn að kanna hvort fleiri séu um borð í skipinu og hafa gengið á milli káeta í leit að fólki, en 3200 farþegar voru um borð og þúsund manna áhöfn. Fyrstu fréttir hermdu að átta manns hefðu látist en það hefur verið dregið til baka og er tala látinna nú þrír. AFP fréttastofan hefur eftir yfirmanni strandgæslunnar að um þrjátíu metra löng rifa sé á skipinu en þó sé of snemmt að segja til um hvað nákvæmlega hefði gerst. Tvö ár eru síðan skemmtiferðaskip frá sama skipafélagi, Costa Cruises, strandaði í Rauða hafinu skemmt frá egypsku borginni Sharm al sjeik, en þrír meðlimir áhafnarinnar létust í því slysi.
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Banaslys á Hvolsvelli Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Fleiri fréttir Fyrsta fórnarlambið nafngreint Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Fimm daga þjóðarsorg lýst yfir í Sviss Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Sór embættiseiðinn á niðurlagðri neðanjarðarlestarstöð Kirkja í Amsterdam alelda Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Sjá meira