Erlent

Líkamsleifar Yasser Arafat grafnar upp í dag

Vinna er hafin við að grafa upp líkamsleifar Yasser Arafat fyrrum leiðtoga Palestínu í Ramallah á Vesturbakkanum. Ástæðan fyrir þessu er að mikil vafi leikur á dánarorsök Arafats og raunar hefur hún aldrei fengist á hreint.

Fyrr í ár fannst hið geislavirka og bráðdrepandi efni pólon í persónulegum munum Arafats og það leiddi til vangaveltna um að hann hefði verið myrtur með þessu efni. Rannsókn á líkamsleifunum á að skera úr um hvort svo sé eða ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×