Í nýju tvíeyki í Kína sameinast rauði aðallinn og bóndasonur 16. nóvember 2012 06:13
Í hinu nýja tvíeyki sem tekið hefur við æðstu völdum í Kína sameinast það sem kallað er rauði aðallinn og bóndasonur af fátækum ættum. Greining tímaritsins Economist eða The Economist Intelligence Unit hefur sent frá sér nákvæma og mjög athyglisverða úttekt á þeim Xi Jinping hinum nýja forseta Kína og Li Keqiang hinum nýja forsætisráðherra. Töluverður munur er á hvernig þeir náðu þessum toppum á pólitískum ferli sínum. Xi er fæddur inn í eina af valdamestu fjölskyldum Kína allt frá dögum Maó formanns. Faðir hans var til að mynda varaforsætisráðherra landsins. Í gegnum feril sinn hefur Xi ætíð gengt stöðum borgar- eða héraðsstjóra á hinum auðugri svæðum í Kína, þar á meðal stöðu borgarstjóra í Sjanghai. Hann er að hluta til menntaður erlendis. Li aftur á móti vann sig upp í gegnum ungliðahreyfingu Kommúnistaflokksins. Hann varð handgenginn Hu Jintao fyrrum forseta landsins á þessum fyrstu árum í flokknum og síðan hefur Hu greitt leið hans upp valdastigans. Li er þar að auki hámenntaður sem lögfræðingur frá háskólanum í Peking og er einnig með doktorsgráðu í hagfræði frá þeim skóla. Raunar segir Economist að Hu hafi viljað að Li en ekki Xi yrði eftirmaður sinn. Það féll hinsvegar í grýttan jarðveg innan stjórnmálaráðs flokksins sem taldi að þar með hefði Hu of mikil völd eftir að hafa látið af embætti. Niðurstaða Economist er sú að þessir tveir menn muni vinna vel saman. Tímaritið telur að þeir muni stíga varlega til jarðar í pólitískum umbótum og frelsi en leggja í fyrstu áherslu á að auka velferð Kínverja sem raunar var kjarninn í stefnu fyrri stjórnar.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Sjá meira