Erlent

Enginn asni í framboð

Frá Ekvador í dag.
Frá Ekvador í dag. MYND/AP
Íbúar í borginni Guayaquil í Ekvador töluðu fyrir daufum eyrum þegar þeir kröfðust þess að múlasni fengi að taka þátt í þingkosningum í febrúar.

Asninn var leiddur um götur borgarinnar í dag og stefnan tekin á skrifstofur kjörstjórnarinnar í Guayaquil. Um fúlustu alvöru var að ræða og skartaði múlasninn sínu fegursta. Hann þótti afar frambærilegur enda hafði hann fengið forláta hálsbindi að gjöf.

Stuðningsmaður asnans sagði fjölmiðlum í Ekvador að upptækið væri liður í því að vekja athygli á þingkosningunum og að undirstrika alvarleika þeirra.

Kjörstjórnin var þó ekki jafn hrifin af framboðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×