Ótrúleg endurkoma hjá Arsenal gegn Spurs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. febrúar 2012 13:00 Robin van Persie fagnar jöfnunarmarki sínu í leiknum undir lok fyrri hálfleiks. Nordic Photos / Getty
Arsenal vann magnaðan 5-2 heimasigur á Tottenham í Lundúnarslagnum í dag. Gestirnir komust tveimur mörkum yfir snemma leiks og útlitið svart hjá lærisveinum Arsene Wenger. Þeir jöfnuðu hins vegar fyrir hlé og slátruðu gestunum í síðari hálfleik. Louis Saha kom gestunum yfir strax á fjórðu mínútu þegar skot hans fór af Thomas Vermaelen í netið af stuttu færi. Emmanuel Adebayor, fyrrum leikmaður Arsenal, kom liðinu tveimur mörkum yfir með marki úr vítaspyrnu. Brotið var á Gareth Bale en um strangan dóm var að ræða. Heimamenn sneru vörn í sókn og Frakkinn Bacary Sagna minnkaði muninn á 40. mínútu. Greinilegt að Arsenal-menn voru vaknaðir og skömmu síðar skoraði Robin van Persie stórkostlegt jöfnunarmark með skoti fyrir utan teig. Hollendingurinn kominn með 23 mörk í deild, 29 í öllum keppnum og ekkert lát á markaskorun hans. Í síðari hálfleik réðu heimamenn ferðinni. Tékkinn Tomas Rosicky kom Arsenal yfir með snyrtilegri afgreiðslu af stuttu færi eftir undirbúning van Persie. Það var síðan vængmaðurinn Theo Valcott sem skoraði tvö síðustu mörkin með fínum afgreiðslum úr teignum. Arsenal skýst upp fyrir Chelsea í 4. sæti deildarinnar með sama markahlutfall en fleiri mörk skoruð en grannar sínir.
Mest lesið Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Blaðamannafundi Heimis frestað og von á yfirlýsingu Fótbolti Ringulreið hjá Heimi og leikur við Ísrael í uppnámi Fótbolti „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Fótbolti Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Sport Allt vitlaust á landsliðsæfingu þegar ungir mættu gömlum Sport Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira