Erlent

Flokksþingi kínverska kommúnistaflokksins lokið

Vikulöngu flokksþingi Kommúnistaflokks Kína lauk í morgun með kosningu 350 manna miðstjórnar flokksins. Miðstjórnin kýs síðan níu manna stjórnmálaráð.

Á morgun verða svo nýir leiðtogar flokksins kynntir. Öruggt er talið að Xi Jinping hinn 59 ára gamli varaforseti muni taka við forsetamennbættinu af Hu Jintao. Þá er reiknað með að Li Keqiang varaforsætisráðherra taki við forsætisráðherraembættinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×