Erlent

Öryggisráðið hélt neyðarfund um Gaza

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hélt neyðarfund í nótt vegna stöðunnar á Gaza í framhaldi af því að Ísraelsmenn felldu þar herstjóra Hamas ásamt lífvörum hans í loftárásum í gærdag. Loftárásir Ísraelsmanna héldu áfram í nótt.

Neyðarfundurinn var haldinn að frumkvæði Arabaríkja en þau hafa fordæmt þessar árásir Ísraelsmanna. Susan Rice sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum varði hinsvegar aðgerðir Ísrarelsmanna á fundinum og sagði að þeir hefðu rétt á að verja sig gegn árásum Hamas frá Gazasvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×