Erlent

Sandy kostaði 76 lífið í Bandaríkjunum

Obama á hamfarasvæðinu í New Jersey.
Obama á hamfarasvæðinu í New Jersey. MYND/AP
Enn hækkar tala látinna á austurströnd Bandaríkjanna. Nú er talið að 76 hið minnsta hafi farist þegar stormurinn Sandy gekk á land fyrr í þessari viku, þar af 37 í New York borg. Þannig hafa alls 145 látist af völdum Sandy en 67 fórust þegar fellibylurinn reið yfir Karíbahafið í síðasta mánuði.

Skemmdir af völum Sandy, sem var fyrsta stigs fellibylur áður en hann gekk á landi í New Jersey, eru gríðarlegar. Er eigna- og efnahagstjón af völdum Sandy talið nema um 50 milljörðum dollara, eða það sem nemur 6.305 milljörðum íslenskra króna.

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, og mótframbjóðandi hans, Mitt Romney, gerðu hlé á kosningabaráttu sinni vegna stormsins. Baráttan hófst síðan á ný þegar Obama heimsótti New Jerseyí gær til að funda með ríkisstjóra New Jersey og skoða hamfarasvæðin við strendur ríkissins. New Jersey varð einna verst úti í óveðrinu.

Aðeins eru fimm dagar til kosninga í Bandaríkjunum en Bandaríkjamenn munu greiða atkvæði þriðjudaginn 6. nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×