Erlent

Sér fyrir endann á rafmagnsleysi í New York

Rafmagn er nú komið á stóran hluta Manhattan. Þar hefur verið rafmagnslaust á nokkrum stöðum frá því að stormurinn Sandy gekk á land í New Jersey.
Rafmagn er nú komið á stóran hluta Manhattan. Þar hefur verið rafmagnslaust á nokkrum stöðum frá því að stormurinn Sandy gekk á land í New Jersey. MYND/AFP
Rafmagn er nú komið á stóran hluta Manhattan. Þar hefur verið rafmagnslaust á nokkrum stöðum frá því að stormurinn Sandy gekk á land í New Jersey í síðustu viku.

Rafmagnsleysið er rakið til sprengingar í spennistöð á Manhattan. Þó er víða enn rafmagnslaust. Lestarkerfi borgarinnar eru enn í lamasessi, þó svo að nokkrar lestar hafi haldið áætlun í dag og í gær.

Borgaryfirvöld í New York stefna að því að koma rafmagni á áður en skólastarf hefst á morgun og New York búar ganga í kjörklefann á þriðjudaginn þegar forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×