Erlent

Búist við hörðum mótmælum í Aþenu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá mótmælum 1. nóvember síðastliðinn.
Frá mótmælum 1. nóvember síðastliðinn. Mynd/ AFP.
Fjörtíu og átta klukkustunda allsherjarverkfall hefst í Grikklandi í dag, en þá verður nýjum niðurskurðarhugmyndum ríkisstjórnarinnar mótmælt. Mótmælagöngur verða farnar um miðborg Aþenu en hingað til hafa þær endað með átökum milli almennings og lögreglumanna. Niðurskurðartillögurnar snúast um að skerða heilbrigðisþjónustu, lækka opinber laun og eftirlaun og hækka eftirlaunaaldur. Þingið mun greiða atkvæði um tillögurnar á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×