Erlent

Krókódíll gómaður eftir tveggja ára leit

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Krókódíllinn hefur verið kallaður Steinninn, vegna skapfestu sinnar.
Krókódíllinn hefur verið kallaður Steinninn, vegna skapfestu sinnar. Mynd/ Getty.
Krókódíll sem slapp úr dýragarði í bænum Beit Lahia á Gaza ströndinni fyrir tveimur árum var gómaður aftur í gær. Lögreglan biðlaði til óbreyttra borgara um að þeir hjálpuðu þeim að þurrka upp holræsið og veiða krókódílinn með hákarlanetum. Dýrið hefur verið sent aftur í dýragarðinn. Um var að ræða 180 sentimetra langan krókódíl. Hann er sagður hafa verið mjög orkumikill þegar hann náðist. Vegna styrks síns og ákveðins skaps var krókódíllinn kallaður Steinninn eða „The Rock".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×