Mögulegt að barnaníðingurinn sé þingmaður Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. nóvember 2012 09:00 Theresa May innanríkisráðherra Breta svaraði fyrir málið í þinginu í gær. Mynd/ Getty.
Þingmaður breska Verkamannaflokksins segir að ef íhaldsmaðurinn sem sakaður er um að hafa misnotað börn á barnaheimili í Wales á áttunda og níunda áratug síðustu aldar er þingmaður, þá eigi hann samstundis að víkja af þingi. Greint hefur verið frá því undanfarna daga að maður sem sakaður er um að hafa beitt börn á barnaheimili í Wales ofbeldi sé háttsettur félagi í Íhaldsflokknum. Maðurinn mun hafa misnotað börnin með því að taka þau af heimilinu og selja þau í vændi á nálægu hóteli. David Cameron, forsætisráðherra Breta og formaður Íhaldsflokksins, hefur sagt að það sé nauðsynlegt að bregðast hart við þessum ásökunum og Theresa May, innanríkisráðherra í stjórn hans, svaraði fyrir málið í þinginu í gær. Susan Jones, þingmaður Verkamannaflokksins, sagði í þeim umræðum að ríkisstjórnin yrði að bregðast hart við ef það kæmi í ljós að hinn grunaði væri þingmaður í lávarðadeildinni. Innanríkisráðherrann svaraði því til að ef grunur félli á nokkurn aðila, til dæmis ef hann yrði ákærður, þá yrði tekin ákvörðun um framtíð hans þegar sú atburðarrás færi af stað. Talið er að rannsókn sem fór fram fyrir nokkrum árum á misnotkuninni á barnaheimilinu hafi verið í skötulíki. Innanríkisráðherrann lýsti því í breska þinginu í gær hvaða leið yrði farin að þessu sinni til að rannsaka málið í þaula.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira