Erlent

Obama um úrslitin: Það besta er framundan

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Barack Obama hélt sigurræðu sína eldsnemma í morgun að íslenskum tíma. Á sigurhátíð hans hljómaði lag Stevie Wonders, Sign Sealed Delivered þegar Barack gekk inn í salinn ásamt Michelle, eiginkonu sinni og dætrum þeirra tveimur. „Takk takk takk," sagði Obama og hélt síðan áfram að ræða niðurstöður kosninganna.

„Fólk hefur áminnt okkur um að þótt þetta hafi verið erfið leið, þótt leiðin hafi verið löng þá höfum við barist vel og við vitum í hjörtum okkar að það besta er framundan, sagði Obama í ræðu sinni.

„Ég vil þakka hverjum og einum Bandaríkjamanni sem tók þátt í kosningunum, hvort sem þú varst að kjósa í fyrsta skipti eða hvort þú beiðst í röð í mjög langan tíma til að geta kosið," sagði hann.

Hann sagðist hafa þakkað Mitt Romney frambjóðenda Repúblikana og aðstoðarforsetaefni hans, til hamingju með góða kosningabaráttu. „Við höfum háð harða baráttu, en það er bara vegna þess að við elskum báðir þetta land," sagði Obama.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×