Erlent

Ætlaði á klósettið en kom aldrei til baka

Lík þrettán ára pilts fannst í skurði í enska þorpinu Edenthorpe, í grennd við Doncaster, í dag. Piltsins hafði verið saknað frá því síðdegis á sunnudag. Hann var að leik með vinum sínum á leikvelli í þorpinu, hann bað vin sinn um að líta eftir farsíma sínum á meðan hann færi á klósettið, en hann snéri aldrei aftur.

Málið þykið óhugnalegt en enginn hefur verið handtekinn vegna þess. Rannsókn lögreglu er á frumstigi og því ómögulegt að segja til um málsatvik.

Móðir hans sagði í samtali við fjölmiðla áður en líkið fannst að hvarfið væri ekki líkt hegðun hans.

„Hann hefur aldrei gert neitt svona áður. Á laugardagskvöldið áttum við yndislega stund saman, það voru engin vandamál heima eða í skólanum. Við viljum bara vita að hann sé í lagi, við höfum ekki hugmynd um hvar hann er eða hvað gerðist."

Daily Mail greinir frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×