Erlent

Mitt Romney tekur lagið fyrir stuðningsmenn sína

Það er margt sem leynist á internetinu enda margir netverjar út um allan heim sem alltaf eru að bralla eitthvað. Nú hefur hópur manna, sem kalla sig The Gregory Brothers, útbúið myndband þar sem Mitt Romney, sem tapaði forsetakosningunum í gær, sést syngja ræðu sína þar sem hann tilkynnir stuðningsmönnum sínum tapið.

Þessi útgáfa er þó ekki eins og upprunalega ræðan, heldur syngur hann í þetta skiptið.

Mjög skemmtilegt - og ansi vel gert hjá þeim bræðrum Gregorys.

Sjá má myndbandið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×