Erlent

Öflugasti jarðskjálfti í 38 ár

Mikil ringulreið ríkir í landinu enda er tjónið mikið.
Mikil ringulreið ríkir í landinu enda er tjónið mikið. Mynd/AFP
Að minnsta kosti 39 eru látnir eftir harður jarðskjálfti skók Gvatemala í kvöld og hrundi skóli meðal annars til grunna. Skjálftinn, sem mældist 7,4 stig, fannst greinilega í Mexíkó, El Salvador og Hondúras.

Þetta er öflugasti jarðskjálfti sem mælst hefur á svæðinu síðan árið 1974, þegar skjálfti af stærðinni 7,5 varð að minnsta kosti 20 þúsund manns að bana.

Ljóst er að tjónið er mikið en aurskriður hafa lokað vegum og eru yfir 50 hús gjörónýt. Háar byggingar hafa verið rýmdar af ótta við eftirskjálfta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×