Erlent

Nær 50 manns fórust í jarðskjálfta í Gvatemala

Að minnsta kosti 48 manns fórust í mjög öflugum jarðskjálfta undan Kyrrahafsströnd Gvatemala í gærdag og um 73.000 manns eru nú án rafmagns vegna skjálftans.

Skjálftinn mældist 7,4 stig og er sá öflugasti í landinu frá árinu 1976. Forseti landsins hefur lýst yfir neyðarástandi á skjálftasvæðinu og fólk hefur verið beðið um að yfirgefa heimili sín vegna hættu á frekari skjálftum. Töluvert hefur verið um eftirskjálfta í nótt.

Skjálftinn setti í gang mikið af aurskriðum sem lokað hafa öllum vegasamgöngum að skjálftasvæðinu og verulegar skemmdir hafa orðið á ýmsum byggingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×