Erlent

Puerto Rico að verða 51. ríki Bandaríkjanna

Allar líkur eru á því að nýrri stjörnu verði bætt í bandaríska fánann á næsta ári en þá stendur til að taka eyjuna Puerto Rico inn sem 51. ríkið í Bandaríkjunum.

Kosið var um málið samhliða forsetakosningunum í vikunni og voru 62% íbúa Puerto Rico samþykkir því að verða Bandaríkjamenn. Aðeins 5% þeirra vildu verða sjálfstæð þjóð.

Puerto Rico er þegar í nánu ríkjasambandi við Bandaríkin en íbúar þar hafa þó ekki kosningarétt í bandarískum kosningum.

Reiknað er með að Barack Obama nýkjörinn forseti muni staðfesta niðurstöðu þessara kosninga enda hefur hann sagt að hann myndi virða vilja Puerto Rico í þeim. Áður en kemur til kasta Obama þurfa þó báðar deildir Bandaríkjaþings að samþykkja inngöngu eyjarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×