Erlent

Fundu tíu þúsund flöskur af einu dýrasta rauðvíni í heimi

Tíu þúsund flöskur af einu dýrasta rauðvíni í heimi fundust í yfirgefnu húsi í Kína á dögunum. Lögreglan rannsakar nú vínfundinn, en ekki er víst hvort að flöskunar séu ekta eða um eftirlíkingu sé að ræða. Vínið er að gerðinni Chateau Lafite Rothschild sem er fransk eðalvín. Ef flöskurnar eru ekta má gera ráð fyrir að flöskurnar séu um tveggja milljarða króna virði.

Það er í raun mjög algengt að rauðvín af þessi gerð sé falsað í Kína. Þannig hefur franski vínframleiðandinn unnið sex dómsmál gegn kínverskum bruggurum sem falsa vínið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×