Erlent

Skírði synina Barack Obama og Mitt Romney

Millicent Owuor vildi ekki gleyma kosningunum og skírði því syni sína Barack Obama og Mitt Romney.
Millicent Owuor vildi ekki gleyma kosningunum og skírði því syni sína Barack Obama og Mitt Romney.
Móðir frá Kenía í Afríku eignaðist tvíbura morguninn eftir að úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum lágu fyrir. Þegar komið var að því að finna nöfn á litlu krílin var fátt annað sem kom upp í hugann á móðurinni en Barack Obama og Mitt Romney.

Millicent Owuor, sem er tvítug, sagði í samtali við héraðfréttablað í heimabæ sínum að hún hafi ákveðið að skíra drengina sína tvo nöfnunum því hún vildi ekki gleyma kosningunum.

Bærinn, sem konan býr í, er í næsta nágrenni við Kogelo, sem er einmitt bærinn sem faðir Barack Obama er jarðaður og margir ættingjar hans búa. Fylgst var náið með kosningunum í ár, líkt og árið 2008 þegar Obama var fyrst kjörinn sem forseti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×