Erlent

Sandy hefur kostað 16 lífið - yfir milljón búnir að yfirgefa heimili sín

Friðrik Indriðason skrifar
„Ofurstormurinn" Sandy hefur þegar kostað 16 manns lífið á austurströnd Bandaríkjanna og valdið gífurlegu eignatjóni. New York borg er meir og minna myrkvuð vegna rafmagnsleysis og Manhattan er á floti en þar hefur aldrei mælst jafnmikil ölduhæð í sögunni.

Yfir milljón manns hefur neyðst til þess að yfirgefa heimili sín undan Sandy en talið er að stormurinn geti haft áhrif á líf um 50 milljóna manna vegna flóða, rafmagnsleysis og skemmda á híbýlum.

Flestir þeirra sem farist hafa lentu undir trjám sem rifnuðu upp með rótum í storminum. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að New York, New Jersey og Long Island séu hamfarasvæði og þar með getur forsetinn notað fjármagn úr alríkissjóðum til að bæta þá skaða sem þessi svæði hafa orðið fyrir.

Sandy gekk á landi í New Jersey um kvöldmatarleytið í gærkvöldi að staðartíma. Heldur hefur dregið úr vindstyrk Sandy sem flokkast ekki lengur sem fellibylur þótt vindhviður nái enn fellibylsstyrk.

Gífurleg úrkoma fylgir storminum og mikil ölduhæð. Þannig mældist ölduhæðin við Manhattan nær 5 metrar og er það met eða tæplega metra hærra en á sjötta áratugnum þegar fellibylurinn Donna gekk þar yfir. Bílastæðahús og neðanjarðarlestargöng eru yfirfull af vatni. Talið er að það gæti tekið allt að fjóra daga að koma almenningssamgöngum í lag að nýju í New York vegna þessara flóða.

Þá hafa eldsvoðar orðið víða vegna skammhlaups í rafkerfum. Í einum eldsvoðanna brunnu 50 hús í Queens hverfinu til grunna í nótt og þar þurftu slökkviliðsmenn aðstoð frá þjóðvarðliðinu til að koma sér á staðinn.

Sandy hefur valdið víðtæku rafmagnsleysi þar sem stormurinn herjar.

New York er meir og minna í myrkri sökum þess og rýma þurfti eitt af sjúkrahúsum borgarinnar og flytja um 260 sjúklinga annað. Talið er að 6,5 milljónir manna séu nú án rafmagns.

Allar almenningssamgöngur liggja niðri í borgunum New York. Boston, Washington, Baltimore og Philadephíu og verulegar truflanir eru á flugsamgöngum. Ljóst er að eignartjón verður gífurlegt og talið að það geti orðið allt að 10 milljarðar dollara, eða yfir 1.200 milljarðar króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×