Erlent

Sjö látnir eftir bílasprengjuárás í Afganistan

Á síðustu árum hafa hersveitir NATO reynt að stemma stigum við ofbeldisverkum í Kandahar.
Á síðustu árum hafa hersveitir NATO reynt að stemma stigum við ofbeldisverkum í Kandahar. mynd/AFP
Að minnsta kosti sjö eru látnir eftir bílasprengjuárás í borginni Kandahar í Afganistan í dag.

Tilræðið átti sér stað fyrir utan höfuðstöðvar lögregluyfirvalda í borginni. Yfirvöld í Kandahar segja að 19 manns hafi slasast.

Sprengjan var afar öflug og splundruðust rúður í nærliggjandi byggingum.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á verknaðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×