Erlent

Leo DiCaprio vill þrjá milljarða fyrir húsið sitt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Leonardo DiCaprio er að reyna að losna við húsið sitt.
Leonardo DiCaprio er að reyna að losna við húsið sitt. Mynd/ Getty.
Stórleikarinn Leonardo DiCaprio setti nýlega húsið sitt á Malibu í Kaliforníu á sölu. Hann vill fá 2,9 milljarða íslenskra króna fyrir húsið, sem er sjö svefnherbergja og með jafnmörg baðherbergi. Það er vefútgáfa blaðsins Los Angeles Times sem segir frá þessu, en ekki kemur fram hversu stórt húsið er í fermetrum talið. DiCaprio hafði auglýst húsið til leigu í sumar og átti langtímaleigjandi þá að geta leigt það á 9,5 milljónir íslenskra króna á mánuði, en leigjandi sem hugðist vera skemur en í sex mánuði átti að greiða tvöfalt hærra verð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×