Elfar Árni: Vil halda áfram að skora mörk fyrir Blika Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2012 06:00 Elfar Árni skoraði fyrsta mark Blika á tímabilinu og tryggði um leið fyrsta sigurinn. fréttablaðið/pjetur
Blikinn Elfar Árni Aðalsteinsson er leikmaður 3. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði sigurmark Blika gegn Val í fyrrakvöld og tryggði þeim grænu þar með fyrsta sigur tímabilsins. Mark Elfars Árna var einnig fyrsta mark Blika á tímabilinu. „Það var fyrst og fremst gott að ná fyrsta sigrinum," sagði Elfar Árni. „Þetta var bara tímaspursmál um fyrsta markið og fyrsta sigurinn því mér finnst við hafa verið að spila ágætlega. Nú erum við komnir á beinu brautina og ætlum að vera þar áfram." Elfar Árni er 21 árs Húsvíkingur sem kom til Breiðabliks frá Völsungi fyrir tímabilið. Hann hefur fengið stórt hlutverk í sóknarleik liðsins í upphafi tímabilsins. „Mér hefur verið tekið vel í Kópavoginum og mér líður mjög vel. Þjálfarinn hefur sýnt mér mikið traust og leyft mér að spila mikið, bæði í vor og á undirbúningstímabilinu," sagði hann. Þrátt fyrir ungan aldur á Elfar Árni fimm ár að baki með meistaraflokki Völsungs. Hann neitar því þó ekki að stökkið úr 2. deildinni í þá efstu sé stórt en segir að það hafi verið tímabært í sínu tilfelli. „Ég er ánægður með að hafa tekið þetta skref. Breiðablik var góður kostur fyrir mig og finnst mér að mér hafi gengið vel hér." Elfar Árni er yngri bróðir Baldurs Aðalsteins sem lék áður með ÍA, Val og Víkingi en hann varð Íslandsmeistari með tveimur fyrstnefndu liðunum. Hann spilaði einnig átta A-landsleiki. Elfar fór þó varlega í að bera sig saman við stóra bróður. „Eigum við ekki að segja að við séum ólíkir leikmenn. Ég mun reyna að ná jafn langt og hann gerði en það verður bara að koma í ljós hvernig það gengur. Ég stefni á að reyna að skora fleiri mörk og hjálpa þannig mínu liði að ná sínum markmiðum í sumar," sagði Elfar Árni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Sjá meira