Tala særðra komin í 75 - árásarmaðurinn einn að verki 13. desember 2011 15:05
Nú er ljóst að 75 slösuðust í árásinni sem gerð var í belgísku borginni Liege í dag. Fjórir eru látnir og á blaðamannafundi sem lauk fyrir stundu greindi lögregla frá því að árásarmaðurinn hafi verið einn á ferð. Hann hét Nordine Amrani og framdi hann sjálfsmorð eftir að hafa skotið úr riffli og skammbyssu á mannfjöldann og kastað þremur handsprengjum niður á Saint-Lamberte torgið. Þeir sem létust voru 65 ára gömul kona og tveir unglingar. Þá er sagt að tveggja ára gömul stúlka sé á meðal þeirra sem berjist fyrir lífi sínu. Nordine Amrani hafði verið boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglu í dag en hann hafði áður verið dæmdur fyrir vopnaburð og eiturlyfjanotkun. Pakistanska dagblaðið Karachi Post fullyrty fyrr í dag að árásin tengist dómi sem féll yfir foreldrum Sadiu Sheikh, en þau voru í gær dæmd í sama dómshúsi fyrir heiðursmorð á dóttur sinni. Þá hafði sprengjuhótun borist réttinum. Þessar fregnir virðast þó ekki hafa átt við rök að styðjast ef marka má yfirvöld.
Tengdar fréttir Hryðjuverk í Belgíu Tveir fórust í sprengingu í belgísku borginni Liege fyrir stundu. Tólf eru særðir, samkvæmt frásögn belgískra fjölmiðla. Fram kemur á fréttavef BBC að nokkrir menn hafi hent sprengiefni og handsprengjum í mannþröng á strætóstoppistöð. Sumir belgískir fjölmiðlar hafa haldið því fram að einn árásarmannanna sé á meðal hinn látnu. Enginn hefur lýst ábyrgð á sprengjunum á hendur sér. 13. desember 2011 12:47 Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira
Hryðjuverk í Belgíu Tveir fórust í sprengingu í belgísku borginni Liege fyrir stundu. Tólf eru særðir, samkvæmt frásögn belgískra fjölmiðla. Fram kemur á fréttavef BBC að nokkrir menn hafi hent sprengiefni og handsprengjum í mannþröng á strætóstoppistöð. Sumir belgískir fjölmiðlar hafa haldið því fram að einn árásarmannanna sé á meðal hinn látnu. Enginn hefur lýst ábyrgð á sprengjunum á hendur sér. 13. desember 2011 12:47
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent