Roy Hodgson: Það styðja allir leikmennirnir mig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2011 19:50
Roy Hodgson, stjóri Liverpool, sagði ekki ætla að láta, vangaveltur út í bæ, trufla sig í sínu starfi. Liverpool vann 2-1 sigur á Bolton á Anfield í dag þar sem Joe Cole skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. „Ég talaði við eigendurna fyrir leikinn og þeir óskuðu mér góðs gengis. Þeir sögðust líka finna til með mér eftir tapið á móti Wolves," sagði Roy Hodgson sem sagðist ætla að taka sér það bessaleyfi að láta alla neikvæðni eiga sig á blaðamannafundinum eftir leikinn. „Þetta snýst ekki um mig því þetta snýst um Liverpool Football Club og frammistöðu liðsins. Orðrómur um mína framtíð truflar mig ekki því ég er bara að hugsa um að undirbúa lið mitt svo að það geti spilað eins og það gerði hér í dag," sagði Hodgson. „Ég er ánægður í dag af því að liðið spilað vel, eins vel og ég vil að þeir spili, eins vel og þeir vilja sjálfir spila og eins vel og allir stuðningsmennirnir vilja. Þetta verður því ánægjulegt kvöld," sagði Hodgson. „Við vorum augljóslega miklu betri í allar 90 mínúturnar. Ég er sérstaklega ánægður með sigurmarkið en ég hefði ekki verið svo ósáttur með 1-1 jafntefli því þetta var svo mikil framför frá því á miðvikudaginn," sagði Hodgson. „Ég veit vel hvenær leikmenn styðja stjórann sinn og sitt félag og hvenær þeir gera það ekki. Ef einhver ýjar að því að það sé eitthvað vandamál á því sviði innan okkar liðs þá hefur sá sami ekki fylgst með því sem hefur verið í gangi hér undanfarna sex mánuði. Það styðja allir leikmennirnir mig," sagði Hodgson. „Þó að við höfum unnið leikinn á umdeildu marki þá þurfum við ekkert að vera afsaka okkur fyrir það. Þeir sem segja að við áttum ekki sigurinn skilinn þeir eru durtslegir," sagði Hodgson en það má sjá svipmyndir frá leiknum með því að smella hér að ofan. Það var nefnilega svolítil rangstöðulykt af sigurmarki Joe Cole.
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira