Konchesky og Poulsen eiga báðir möguleika hjá Kenny Dalglish Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2011 14:00 Kenny Dalglish. Mynd/AP
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, segist eiga mikið verk fyrir höndum í að reyna að byggja upp sjálfstraust og orðspor margra af reyndari leikmanna liðsins. Hann nefndi sérstaklega bakvörðinn Paul Konchesky og danska miðjumanninn Christian Poulsen en Roy Hodgson keypti þá báða til liðsins. Paul Konchesky og Christian Poulsen hafa ekki átt upp á pallborðið hjá stuðningsmönnum Liverpool og flestir bjuggust við því að nýi stjórinn, Kenny Dalglish, myndi reyna að losa sig við þá. Svo verður þó ekki því Dalglish ætlar sér að reyna að koma þeim báðum í gang. Roy Hodgson keypti Konchesky frá Fulham og Christian Poulsen kom frá Juventus. Þeir voru ekki með í jafnteflinu við Everton í gær og Konchesky hefur ekki enn fengið að spila fyrir Dalglish. „Við erum með nokkra eldri leikmenn sem stuðningsmennirnir hafa ekki tekið vel. Við verðum að reyna að byggja þá upp. Ef við getum fengið þá Christian Poulsen og Paul Konchesky til baka þá erum við með mun breiðari hóp. Christian spilaði vel á móti Blackpool og Paul mun líka fá sitt tækifæri," sagði Kenny Dalglish en notaði engu að síður Glen Johnson sem vinstri bakvörð á móti Everton þótt að bæði Konchesky og Fábio Aurélio væru heilir. „Við viljum alltaf hafa bestu mennina okkar inn á vellinum," svaraði Dalglish aðspurður út í þá ákvörðun sína. Dalglish sá annars marga jákvæða hluti í Everton-leiknum og segir liðið vera á réttri leið.
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira