Bara 8 af 660 starfmönnum Man. United vissu um stúkuskírnina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2011 15:30 Sir Alex Ferguson fyrir framan stúkuna sína. Mynd/AFP
Sir Alex Ferguson, var heiðraður um helgina þegar hann hélt upp á 25 ára afmæli sitt sem stjóri Manchester United. Félagið ákvað að endurskíra Norðurstúku Old Trafford „Sir Alex Ferguson Stand" í tilefni dagsins og skoski stjórinn hafði ekki hugmynd um hvað var í gangi. Í raun vissu aðeins 8 af 660 starfsmönnum Manchester United hvað stæði til og nýja stúkunafnið var falið undir borða sem leit alveg eins út og skiltið sem var áður á Norðurstúkunni. Mike Phelan, aðstoðarstjóri Ferguson, sá skiltið reyndar blakta í vindinum en sagði Sir Alex ekki frá því. „Jæja, hann er þá rekinn," sagði Ferguson seinna í léttum tón. Stjórnarformaðurinn David Gill átti hugmyndina og fyrsti fundurinn um málið fór fram á miðvikudaginn var eða rétt fyrir Meistaradeildarleik United-liðsins á móti Otelul Galati. Gill lagði mikla áherslu á það að enginn á fundinum, átta manns, mættu leka út leyndarmálinu því þetta ætti að koma stjóranum algjörlega á óvart. Unnið var við nýja skiltið í skjóli nætur. Fyrst var „Old Trafford, Manchester" skiltið tekið niður og svo voru nýju stafirnir settir upp. Sex manna lið vann að uppsetningunni og þeir þurftu allir að skrifa undir plagg þar sem þeir lofuðu að segja ekki kóngi né presti frá því sem þeir höfðu gert. „Ég vissi ekkert um þetta en ég verð að þakka félaginu fyrir þennan heiður því ég er mjög stoltur af þessu," sagði Ferguson.
Mest lesið Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Körfubolti Uppgjörið: Valur - Fram 27-28 | Fram Íslandsmeistari í fyrsta sinn í tólf ár Handbolti Boxari lést tveimur vikum eftir að hafa gift sig Sport Vinkonur ósáttar við ákvörðun Söru: „Við töluðumst ekki við í smátíma“ Fótbolti Frakkar sjokkeraðir vegna hópsins sem kemur til Íslands Fótbolti Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Enski boltinn Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Körfubolti Tottenham vann Evrópudeildina Fótbolti Uppgjörið: KR - Fram 2-3 | Byström sökkti KR-ingum sem hafa tapað þremur í röð Íslenski boltinn Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Fótbolti Fleiri fréttir Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Sjá meira