Dalglish: Hugsið ykkur um áður en þið kaupið miða á Chelsea-leikinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. nóvember 2011 06:00 Nordic Photos / Getty Images
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, er vægast sagt fúll út í enska knattspyrnusambandið fyrir að láta liðið spila með tveggja sólarhringa millibili. Liverpool mætir Chelsea í fjórðungsúrslitum enska deildabikarsins þann 29. nóvember, aðeins tveimur dögum eftir mikilvægan leik gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. „Það er algjör hneysa að leikmenn skuli vera beðnir um að spila lykilleik í ensku úrvalsdeildinni og svo aftur í deildabikarnum 48 klukkustundum síðar," sagði Dalglish við enska fjölmiðla. „Ef yfirvöld vilja gengisfella eigin keppnir þá er það þeirra mál. En það ætti ekki að koma þeim á óvart ef þessi keppni verði notuð til að leyfa ungum leikmönnum að öðlast reynslu." „Ég ætla alla vega að segja stuðningsmönnum okkar að hugsa sig vandlega um áður en þeir kaupa sér miða á leikinn gegn Chelsea. Við viljum ekki að þeir eyði pening í miðakaup þegar við erum neyddir til að nota unga leikmenn." „Svo er City í svipaðri stöðu vegna leiks liðsins við Arsenal. Það er semsagt verið að fara mjög illa með lið sem hafa tekið þessa keppni mjög alvarlega síðustu tvö árin." „Liverpool og City eru bæði reiðubúin að færa leik okkar fram til laugardagsins. En okkur er sagt að það sé ekki hægt vegna sjónvarpsútsendingarinnar."
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira