Jafnt í Merseyside-slagnum Hjalti Þór Hreinsson skrifar 16. janúar 2011 15:55 Raul Meireles fagnar marki sínu í dag. AFP
Liverpool og Everton skildu jöfn í grannaslagnum á Anfield í dag. Bæði lið skoruðu tvö mörk í hörku leik. Liverpool var miku betra í fyrri hálfleiknum og munaði um Fernando Torres sem var mjög sprækur. Hann var búinn að skjóta einu sinni eftir 20 sekúndur og hann skaut svo í stöngina eftir fimmtán mínútna leik. Hann hefði reyndar getað gefið boltann á Raul Meireles sem var fyrir opnu marki en að framherja hætti skaut hann þess í stað. En Meireles fékk annað tækifæri. Eftir skalla Dir Kuyt sem Tim Howard varði, skaut Kuyt aftur í Howard áður en boltinn barst á Meireles sem tók við boltanum og þrumaði honum í hornið. Vel að verki staðið og Kenny Dalglish fagnaði sem óður maður á bekknum, með stuðningsmönnum Liverpool. Torres skapaði svo fleiri hættur en Everton gekk illa að ógna. Pepe Reina þurfti aldrei að taka á stóra sínum þrátt fyrir að nokkrar hættur hafi skapast. Torres snerti boltann 32 sinnum í hálfleiknum, jafn oft og í öllum leiknum gegn Wolves fyrir skömmu þar sem hann leit út fyrir að vera með hausinn í Madríd en ekki í leiknum. Staðan var 1-0 í hálfleik. En eftir aðeins 40 sekúndur í seinni hálfleik hafði Everton jafnað. Liverpool gaf horn og Martin Skrtel var úti á þekju í dekkningunni. Sylvain Distan nýtti sér það og stangaði hornspyrnuna inn. Vel gert hjá Everton og staðan orðin 1-1. Og það leið ekki á löngu að slök vörn Liverpool hleypti Everton yfir, aftur var það hinn glórulausi Skrtel sem fór illa að ráði sínu. Jermaine Beckford fékk boltann og kláraði færið mjög vel. Everton skyndilega komið yfir eftir að Liverpool hafði verið betri aðilinn í fyrri hálfleik. Howard gerði sig svo sekan um klaufaleg mistök þegar hann tók Maxi Rodriguez niður í teignum um miðbik seinni hálfleiksins. Dirk Kuyt skoraði örugglega úr vítinu. Leikurinn fjaraði svo út og lauk með 2-2 jafntefli sem Everton-menn eru eflaust mun ánægðari með en rauðir erkifjendur þeirra.
Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Hrafnhildur til starfa hjá Sundsambandi Íslands Sport „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira