Erlent

Á annan tug manna látnir á Gasa-svæðinu

Enn á ný grafa íbúar á Gasa ættingja sína.
Enn á ný grafa íbúar á Gasa ættingja sína. nordicphotos/AFP
Tíu Palestínumenn og einn Ísraeli hafa látið lífið í átökum um helgina, sem hafa dregið mjög úr vonum um að samband Ísraelsstjórnar og Hamas-samtakanna skáni eitthvað.

Meðal annars gerði Ísraelsher loftárás á Palestínumenn á Gasasvæðinu í gær, en Palestínumenn skutu flugskeytum yfir landamærin til Ísraels.

Einkum voru það samtökin Heilagt stríð íslams, sem stóðu í átökum við ísraelska herinn. Ísraelar kenna engu að síður um Hamas-samtökunum, sem hafa farið með völd á Gasasvæðinu í nokkur ár.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×