Newcastle upp fyrir Chelsea og í 3. sætið - Demba Ba með þrennu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2011 19:30 Demba Ba og Steven Taylor Mynd/Nordic Photos/Getty
Newcastle hélt áfram ótrúlegu gengi sínu í ensku úrvalsdeildinni með 3-1 sigri á Stoke á útivelli í lokaleik tíundu umferðar í kvöld. Newcastle hefur enn ekki tapað leik í deildinni (6 sigrar, 4 jafntefli) og komst upp fyrir Chelsea og í 3. sætið með þessum sigri sem var sá fjórði í síðustu fimm leikjum liðsins. Senegalinn Demba Ba skoraði öll mörk Newcastle á Britannia í kvöld og hefur því skorað átta af ellefu mörkum liðsins í þessum fimm síðustu leikjum. Bæði Ba og hinn framherjinn Leon Best, hafa blómstrað undir stjórn Alan Pardew á þessu tímabili. Newcastle saknar því ekki mikið Andy Carroll. Tony Pulis, stjóri Stoke, þurfti að horfa upp á varnarmennina Ryan Shawcross og Marc Wilson fara meidda af velli í fyrri hálfleiknum og Stoke hefur nú aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum. Demba Ba skoraði fyrsta markið sitt á 12. mínútu með skalla úr markteignum eftir flotta fyrirgjöf frá Gabriel Obertan en annað markið hans kom á 40. mínútu eftir að Ba stýrði misheppnuðu skoti Leon Best í markið. Demba Ba var svo sannarlega í sviðsljósinu í kvöld því hann fékk dæmt á sig víti fyrir að hrinda Peter Crouch í teignum á 75. mínútu. Jonathan Walters skoraði af öryggi úr vítinu og minnkaði muninn í 2-1. Stoke átti því smá von en hún lifði ekki lengi. Leon Best fékk víti sex mínútum síðar þegar Robert Huth hrinti honum í teignum. Demba Ba steig fram og innsiglaði þrennu sína og 3-1 sigur Newcastle.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport Fleiri fréttir Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Sjá meira