Tyrknesk stjórnvöld mótmæla banninu 23. desember 2011 05:30 Hópur fólks mætti með þjóðfána Frakklands og Tyrklands þegar frumvarpið var til afgreiðslu. nordic photos/AFP
Franska þingið bannar fólki að neita því að fjöldamorð Tyrkja á Armenum fyrir nærri hundrað árum hafi í reynd verið þjóðarmorð. Tyrknesk stjórnvöld bregðast ókvæða við og hafa kallað sendiherra sinn heim frá Frakklandi. „Frakkar skipa sér þarna í flokk ríkja sem virða ekki tjáningarfrelsið og leyfa ekki óhlutdrægar vísindarannsóknir,“ segir Abdullah Gul, forseti Tyrklands, um afstöðu franska þingsins til umræðna um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Franska þingið samþykkti í gær bann við því að fólk neiti því opinberlega að fjöldamorðin teljist vera þjóðarmorð. Tyrkir hafa viðurkennt að fjöldamorð hafi átt sér stað þegar allt að 1,5 milljónir manna voru myrtar, en minna á að fjöldamorð hafi verið framin á báða bóga í átökum Armena og Tyrkja og vilja ekki heyra á það minnst að fjöldamorðin jafnist á við þjóðarmorð á Armenum. Armenar hafa hins vegar lengi barist fyrir alþjóðlegri viðurkenningu á því að fjöldamorðin hafi í reynd verið þjóðarmorð. „Nú geta forfeður okkar loksins hvílst í friði,“ sagði Maurice Delighazarian, 75 ára íbúi í Frakklandi sem segist afkomandi bæði Armena og Tyrkja. Frönsk stjórnvöld viðurkenndu það formlega árið 2001 að morðin árið 1915 hefðu verið þjóðarmorð, en hafa nú samþykkt að það teljist refsiverður verknaður að afneita þjóðarmorðum. Viðurlögin eru allt að ársfangelsi og sekt upp á 45 þúsund evrur ef fólk neitar þessu með „hraksmánarlegum hætti“. Tyrknesk stjórnvöld brugðust hins vegar ókvæða við og kölluðu þegar í stað heim sendiherra sinn í Frakklandi. „Þeir sem vilja ekki sjá þjóðarmorð ættu að snúa sér við og horfa á óhreina og blóðuga sögu sjálfra sín,“ sagði Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. „Tyrkir munu beita sér gegn þessari vísvitandi, illviljuðu, ranglátu og ólöglegu tilraun með öllum ráðum utanríkisþjónustunnar.“ Höfundur frumvarpsins, sem samþykkt var á franska þinginu, er Valerie Boyer, þingkona hægriflokksins UMP, sem nú er við völd í Frakklandi. Hún segist hneyksluð á tilraunum Tyrkja til þess að hafa áhrif á lagasetningu á franska þinginu. „Frumvarpið mitt varðar ekkert eitt land sérstaklega,“ segir hún. „Það er sprottið af löggjöf Evrópusambandsins, sem segir að refsa verði fólki sem neitar tilvist þjóðarmorða.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira