Umfjöllun: Atli Viðar með tvö mörk í lokin - enn vinnur FH manni færri Stefán Árni Pálsson skrifar 21. ágúst 2011 00:01 Mynd/Daníel
FH bar sigur úr býtum gegn Þór, 2-0, á Kaplakrikavelli í dag í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, en FH var einum færri síðustu 40 mínútur leiksins. Leikurinn var nokkuð fjörugur til að byrja með og voru FH-ingar sprækari aðilinn. Heimamenn voru ákveðnir í sínum aðgerðum og það leit út fyrir það að FH myndi ná að setja boltann í netið á fyrsta korteri leiksins, en svo var ekki. Leikurinn róaðist mikið með hverri mínútu og liðin náðu hvorugt að skapa sér hættuleg færi. Staðan var 0-0 í hálfleik eftir virkilega bragðdaufan fyrri hálfleik. FH-ingar byrjuðu síðari hálfleikinn vel og pressuðu stíft að marki Þórsara. Heimamenn urðu aftur á móti fyrir áfalli í byrjun síðari hálfleiksins þegar Björn Daníel Sverrisson, leikmaður FH, fékk sitt annað gula spjald í leiknum og var því vikið af velli. Þetta hafði ekki mikil áhrif á leik FH og þeir héldu áfram að stjórna leiknum. Þórsarar hafa ekki náð finna sig einum fleiri í sumar og það var enginn undartekning á því í dag. Á 83. mínútu leiksins náðu heimamenn loksins að brjóta ísinn þegar Atli Viðar Björnsson skoraði fínt mark með þrumuskoti við vítateigsbogann. Varnarmenn Þórs gerðu sig seka um skelfileg varnamistök og Atli Viðar nýtti sér það. Aðeins þremur mínútum síðar var Atli Viðar aftur á ferðinni þegar hann skallaði boltann í netið eftir fína fyrirgjöf frá Matthíasi Vilhjálmssyni og heimamenn kláruðu leikinn 2-0. Fimmti sigurinn í röð hjá FH-ingum og þeir virðast óstöðvandi, sérstaklega einum færri. Hér fyrir neðan má sjá textalýsingu frá blaðamanni Vísis á vellinum.FH 2 – 0 Þór 1-0 Atli Viðar Björnsson (83.) 2-0 Atli Viðar Björnsson (86.) Skot (á mark): 12 – 4 (7-3) Varin skot: Gunnleifur 2 – 6 Rajkovic Horn: 11 – 2 Aukaspyrnur fengnar: 9–10 Rangstöður: 2-0 Dómari: Þorvaldur Árnason 6
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Sjá meira