Blackpool vann Liverpool öðru sinni á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2011 21:53 Gary Taylor-Fletcher skorar í kvöld. Mynd/AP
Nýliðar Blackpool eru með fullt hús á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í vetur eftir 2-1 sigur í leik liðanna á Bloomfield Road í kvöld. Liverpool hefur því tapað tveimur fyrstu leikjum sínum undir stjórn Kenny Dalglish og alls þremur leikjum í röð. DJ Campbell tryggði Blackpool öll þrjú stigin með því að skora sigurmarkið með skalla á 69. mínútu leiksins. Leikmenn Blackpool spiluðu vel í leiknum og áttu sigurinn skilinn. Liverpool fékk dramabyrjun í fyrsta deildarleiknum undir stjórn Kenny Dalglish þegar Fernando Torres kom liðinu í 1-0 eftir tæplega þriggja mínútna leik. Torres fékk þá flotta sendingu frá bakverðinum Martin Kelly og afgreiddi boltann laglega í netið. Gary Taylor-Fletcher jafnaði leikinn á 12. mínútu eftir slæm varnarmistök frá Portúgalanum Raúl Meireles. Meireles sendi boltann beint á David Vaughan sem stakk honum inn fyrir á Taylor-Fletcher sem skoraði örugglega. Blackpool vann líka 2-1 sigur í fyrri leiknum sem fram fór á Anfield í október en Blackpool komst í 2-0 í fyrri hálfleik í þeim leik. Blackpool komst upp í 9. sæti með þessum sigri en Liverpool er í 13. sætinu.
Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Fleiri fréttir Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Sjá meira