Hafna mismunun vegna kynhneigðar 8. desember 2011 04:00 Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heilsar fundargestum eftir yfirlýsingu um stefnubreytingu í málefnum samkynhneigðra í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf á fimmtudag. Fréttablaðið/AP
Bandarísk stjórnvöld munu framvegis styðja við réttindi samkynhneigðra hvar sem er í heiminum með pólitískum þrýstingi, þróunaraðstoð og því að veita samkynhneigðum hæli í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í minnisblaði frá Barack Obama Bandaríkjaforseta sem gert var opinbert á fimmtudag. Hillary Clinton utanríkisráðherra áréttaði þessi áform á fundi í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna á fimmtudag. Samkvæmt þessari viðbót við utanríkisstefnu líta Bandaríkin á það sem grundvallarmannréttindi að samkynhneigðum og transgender-fólki sé ekki mismunað á nokkurn hátt. Samtök samkynhneigðra í Bandaríkjunum fögnuðu þessari stefnubreytingu og bentu á að enn ættu samkynhneigðir það á hættu að vera handteknir, pyntaðir og jafnvel teknir af lífi í sumum löndum. Aðrir bentu á möguleg vandamál tengd þessari nýju stefnu. Neil Grungas, stofnandi samtaka sem beita sér fyrir rétti samkynhneigðra hælisleitenda í Bandaríkjunum, sagði bandarísk stjórnvöld verða að tryggja sér breiðan alþjóðlegan stuðning við þessa stefnu til að alþjóðasamfélagið sæi þetta ekki sem tilraun til að þvinga vestrænum gildum upp á önnur lönd. Grungas benti á að stefnubreytingin gæti haft öfug áhrif. „Í löndum þar sem álit almennings á stefnu Bandaríkjanna er ekki hátt og vestræn gildi eiga ekki upp á pallborðið gæti almenningur notað þessa stefnubreytingu til að réttlæta ofsóknir gegn hommum og lesbíum og auka stuðning við það með því að höfða til andstöðu við Bandaríkin.“ Samkvæmt minnisblaði Obama eiga bandarískir erindrekar að hjálpa samkynhneigðu fólki séu mannréttindi þess brotin. Þá eiga þeir að verja samkynhneigða hælisleitendur og flóttamenn sérstaklega. Innan við ár er síðan bandarísk stjórnvöld rufu þagnarmúr um samkynhneigða hermenn, sem þar til fyrr á þessu ári máttu ekki láta kynhneigð sína í ljós opinberlega. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Innlent Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Innlent Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Fleiri fréttir Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Sjá meira