Fjarvera Pakistans vekur athygli 6. desember 2011 06:00 Forseti Afganistans mætir til kvöldverðar í tengslum við ráðstefnuna í Bonn. nordicphotos/AFP
Fjarvera fulltrúa frá Pakistan setti svip sinn á alþjóðlega ráðstefnu um framtíð Afganistans, sem haldin var í Þýskalandi í gær. „Það er óheppilegt að þeir tóku ekki þátt,“ sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. „Ég reikna með að Pakistanar muni taka þátt í framhaldinu og við reiknum með að þeir gegni uppbyggilegu hlutverki.“ Í viðtali við fréttastofuna AP segir Yousouf Raza Gilani, forseti Pakistans, að reynt sé að leita leiða til að bæta samskiptin við Bandaríkin, sem hafa verið mjög stirð undanfarið. „Við erum staðráðin í að ná sáttum þrátt fyrir að hafa ekki mætt til ráðstefnunnar,“ sagði Gilani. Það var árás bandaríska hersins á landamærastöð í Pakistan fyrir nokkrum vikum, þar sem á þriðja tug pakistanskra hermanna lét lífið, sem varð til þess að samskipti ríkjanna versnuðu um allan helming. Ráðstefnan í Þýskalandi er haldin í tilefni þess að um næstu áramót fer Bandaríkjaher alfarinn frá Afganistan, áratug eftir að stríðið þar hófst. Bandaríkin og Þýskaland höfðu vonast til þess að á ráðstefnunni mætti sýna fram á þann árangur sem náðst hefði í viðræðum við talibanahreyfinguna um frið. Þess í stað snerist hún upp í áminningu um að enn eru mörg erfiðustu deilumálin óleyst.- gb
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira