Erlent

Féll til jarðar í Suðaustur-Asíu

Þýski gervihnötturinn ROSAT sem var 2,4 tonn að þyngd féll til jarðar í gær. 
mynd/Ap
Þýski gervihnötturinn ROSAT sem var 2,4 tonn að þyngd féll til jarðar í gær. mynd/Ap
Gamall þýskur rannsóknargervihnöttur féll til jarðar einhvers staðar í Suðaustur-Asíu í gær, að sögn bandarískra vísindamanna. Allt samband hafði rofnað við hnöttinn ROSAT, sem var 2,4 tonn að þyngd og þaut í kringum jörðina á 90 mínútna fresti.

Búist var við að stærstur hluti gervihnattarins myndi brenna upp á leiðinni til jarðar en hugsanlega myndu bútar úr honum falla til jarðar. Í síðasta mánuði féll gervihnöttur frá NASA í Kyrrahafið en olli engum skaða. - fb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×